Stafræn Markaðssetning

Google Leitarvélabestun

Hvar þín vefsíða lendir í leitarniðurstöðum leitarvéla á borð við Google getur skipt miklu máli í markaðssetningu fyrirtækja. Með ákveðnum innri breytingum á vefsíðum, tengingu við leitarvélar og uppsetning á viðbótum getur umferð um vefsíðuna þína margfaldast.

Allar vefsíður sem við hjá A2 Veflausnum smíðum, koma uppsettar með þessum eiginleikum. Áður en síður eru smíðaðar eru helstu hlutverk og markmið þeirra skoðuð og vefurinn smíðaður út frá þeim forsendum og markmiðum.

Við tökum að okkur vef mælingar og net-umferðar greiningar og störfum með öllum helstu aðilum í markaðs- og netráðgjöf.

Markaðssetning á Netinu

Að vera meðvituð um stöðu vefsíðu/vörumerkis getur verið grunnur að betri árangri. Þegar við gerum stöðu eða þarfa greiningu á vefsíðum, er oftast notast við Google Analytics.

Ef stöðugreining vefsíðu gefur til kynna að eitthvað sé í ólagi eða þarf að bæta, þá komum við með hugmyndir að lausnum bæði ef um er að ræða nýjar og eldri vefsíður. Mikilvægt er að greina heimsóknir inn á vefsvæðið, hvaðan þær koma, hegðun gesta inn á vefnum, brottfall beint af forsíðu og fleira. Þessi stöðugreining sýnir svo hvaða aðgerðir ef nokkrar þarf að gera á vefnum.

Við tökum að okkur að setja upp aðgerðaráætlun sem sett er upp í raunhæfum markmiðum og fylgjum þeim eftir, hvort sem um er að ræða litlar breytingar á vef eða hnitmiðuð auglýsingaherferð á netinu og samfélagsmiðlum.

Samfélagsmiðlar

Rekstur Samfélagsmiðla

Einfaldasta markaðssetning sem skilar oft mestum árangri er öflug viðvera á samfélagsmiðlum. Við tökum að okkur að búa til og/eða endurhanna vefsíðu á samfélagsmiðlum og tengjum hana svo við vefsíðuna.

Viðvera fyrirtækja á samfélagsmiðlum og mikilvægi þess er alltaf að aukast. Vertu sýnilegur á réttum samfélagsmiðli.

Bókaðu Samtal

Hafðu samband og bókaðu fund/símtal

Scroll to Top